Ragga Hilmars

02.04.2009 23:27:42 / Ragga

Lifandi dót og jólasveinar....

Nú situr fólk heima með þungar áhyggjur af skuldum og kosningum......veltir því fyrir sér hvernig það eigi að púsla sér saman svo hver dagur gangi upp....

Nema ég, ég horfi ánægð á mína heimild lækka um hvern mánuð og ég á ekki einu sinni VISA kort og er löngu búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa :) En þú færð ekki að vita hvað það er :)

Ég er afskaplega ánægð í minni 80% vinnu á tannsa stofu með frábæru fólki og enn ánægðari heima hjá mér í 100% vinnu sem móðir og kærasta :)

Þegar ég var yngri var ég alveg viss um tilveru jólasveinsins - það gat engin sagt mér annað en að hann væri til....eins með dótið mitt, ég var alveg handviss um að í hvert sinn sem ég yfigæfi herbergi mitt og í hvert sinn sem ég sofnaði vaknaði það til lífs....páskakanínan var reyndar ekkert vafamál - vissulega eru til kanínunur en engin þeirra gaf mér nokkurntíman egg, ekki nema mamma sé mín páskaknaína ???

Nema hvað...með tímanum fór ég að efast, líklegast var enginn jólasveinn og líklegast lifnaði dótið mitt ekki þegar enginn sá....En....svo var það nú í vikunni....

Við Binni vorum farin að sofa og allt var hér með kyrru...en svo rumska ég við eitthvað og lít á klukkuna og sé að hún er 6:00 í því heyrist lag inní stofu "dududuriru dudiruriru" 3 sinnum, þetta lag kemur úr babayborn koppinum hennar Hennýjar Lindar og til að þetta lag spilist þarf að ýta á hnapp....aðsjálfsögðu stóð mér ekki á sama en kaus að safna ekki í mig kjarki til að kíkja fram og fór að sofa aftur....

um morgunin fer ég fram að kíkja á stöðuna og sé að fljóðhesta banginn hennar Hennýjar Lindar (sem hún leikur sér ekki með...er meira punt) liggur með trýnið á koppinum....

Svo klárlega hefur dótið farið á stjá um nóttina og klárlega hefur greyið bangsinn eitthvað tekið feil og dottið á koppin með fyrrnefndum afleiðingum....og auðvitað hefur hann ekki þorað að fara aftur á sinn stað í hræðslu sinni um að ég myndi góma hann....(sem ég hefði gert ef ég hefði safnað kjarki og farið fram um nóttina.....:)

Þannig að trú mín á jólasveinin (sem býr til dótið) og dótið hefur vaknað aftur til lífs, mér og Henný Lindar til mikillar gleði !!

Svo er líka alveg pott þétt á því að Fiskibollan okkar er ekki með gullfiska minni, hann veit hvar hann er, hann hefur karakter, hann hefur gott minni, hann hefur tilfinningar og sál

Eins og einhver sagði....."Er ekki nauðsynlegt að halda í barnið í sér ???? "

» 8 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 19:26:06 / Ragga

Og allir saman nú...

Hún á afmælí dag
hún á afmælí dag
hún á afmæli hún mamma mín
hún á afmæli í dag :haha:

TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ ELSKU MAMMA MÍN:)

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 19:17:11 / Ragga

Við Binni erum búin að taka næsta skref í...

sambandinu....Já ég get svo svarið það, eftir ótrúlega litla umræðu en gífurlegan áhuga hjá báðum fórum við saman um daginn í verslun og renndum kortunum í gegnum posann...jafn mikið á hvort kort nema krónu meira hjá honum :( og aftur verður ekki snúið....

Jú þið giskuðu rétt....við fjárfestum í langþráðum flakkara :D og gætum ekki verið hamingjusamari ;)

Lítið að frétta þar fyrir utan...fór á vinnufund í gær og fékk svo mikið hrós að egóið fór yfir allar hæðir og er ég því í mínum huga laaaang besti starfskraftur landins í dag :) ekki amalegt það;)

og Eybjörg er LOKSINS núin VÚHÚ til hamingju með það skví...hlakka sjúkt mikið til að hitta þig og Begguna í næstu viku...!!

Henný Lind braggast og dafnar vel og gengur vel í leikskólanumm....smá dramadrottning í henni en...hún á líka dramatíska foreldra (ekki bara mömmuna líka pabbann) svo greyið átti sér ekki aðra von ;)

Brúðkaups boðin er rúmlega hálfnuð 2 (3 með Axels sem við komumst ekki í) búin og 2 eftir..í bili :) alltaf gaman í veislum...

Svo verður barna flóð eftir áramót...allir óléttir virðist vera, en ekki ég, ég á flakkara og er dugleg í vinnunni :)

lítið annað að frétta, Henný Lind biður auðvitað kærlega að heilsa en ekki Binni hann er í einhverskonar vinnudóti...

Egið góða helgi og viku :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 15:14:59 / Ragga

Fríð er búið....

Jæja...kannski maður láti ljós sitt skína aðeins í blogg málum...

Sumarfríið er búið að og óhætt að segja að það var bara gott og mikið gert, fórum norður á Illugastaði í bústað, alla vestfyrðina og ættarmót á Bíldudal, fórum í Baldur, vorum í RVK, fórum á Laugarvatn, fórum á ættarmót í Svarfaðardalnum (Skíðadal), fórum aftur á Laugarvatn og veiddum og veiddum, Binni kíkti eina nótt á eina með öllu á meðan ég gæsað Díu og kíkti í miðbæinn, fórum svo aftur á Laugarvatn og létum renna af okkur og fórum í RVK og svo að vinna:)

Semsagt nóg að gera:)

Það var sosem ekkert merkilegt sem slíkt sem gerðist á öllu þessu flakki, fullt af myndum inná Hennýjar síðu fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða en svo eru líka nokkrar hér til hliðar undir "Laugarvatn" í myndasafninu.

En já við erum búnar að gæsa Díu (sem var bara gaman) missti nú samt af megninu af deginum en tók þátt í einhverju og það var bara stuð...eftir matin og romantik.is fórum við niðrí bæ...sem er ekki frásögufærandi nema eftir að dömurnar voru búnar að fá sér pizzu í miðbænum um 3 leytið vildu þær allar fara heim að sofa NEMA ég !! ég var barnslaus og mín biðu sko engar skyldur til að vakna eða neitt og Binni blekaður fyrir norðan svo ég ætlaði ekki neitt heim og hélt á leið niðrí bæ...ein...

hallærislegt þar við Binni erum margbúin að ræða að það sé bara bannað hjá okkur að fara ein...en ég var bara svo viss um að ég fyndi einhvern sem væri að djamma...

ég byrjaði á að fara á hressó fékk mér eitt glas og rölti á dansgólfið...þar sá ég svona frekar nördalegt par að dansa og hugsaði með mér "æ ég dansa bara ivið þau aðeins, frekar glatað að dansa svona ein" eftir smá spyr stelpan mig ég sé bara ein og ég mínu sakleysi hló og sagði "já eins og er..." og við dönsuðum aðeins lengur og þau voru eitthvað að ræða málin (parið) og ég bara dansaði, svo kemur kallin nær mér og hvíslar að mér "langar þig kannski að kíkja á rúntinn með okkur og svo aðeins heim" JÁ SÆLL JÁ FÍNT !! ég nottlega afþakkaði pent og smeigði mér í fjöldann og lét mig hverfa frá þeim...frekar smeik við þetta par...þar sá ég stelpu eina að dansa og ég lét hana verða mitt næsta fórnarlamp í þeirri von um að parið sæi það og færi bara...veit svosem ekki hvort það fór eður ei en ég varð allavega ekki vör við þau og stelpan reyndist bara vera þessi fínasta dama og asskoti góður djamm félgi þar til hún hreinlega hvarf ofaní einhvern mann og ég fór bara heim:)
 
Vaknaði svo með hálfétinn hlölla og djöfulega þunn en ótrúlega sátt þar sem það hefur ekki gerst síðan...ég man ekki hvenær, bara gaman að vita að ég get þetta enn :D

Það var samt voða gott að leggjast upp í sófa með Binnanum næsta kvöld, edrú og barnið undir sama þaki :)

En þá vitiði það stelpur sem haldið að ég sé hætt að djamma því ég er komin með barn en bara rugl:)

Jæja...lítið annað að segja nema áfram Eybjörg...sem er alveg að verða búin að læra og fer alveg að útskrifast sem lögfræðingur :) og þá getum við loksins farið á kaffihús....langþráða kaffihúsaferðin mín...Það er voða "grown up" að eiga bestu vinkonu sem er lögfræðingur finnst mér;)

cu


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 13:19:57 / Ragga

OG ALLIR SAMAN NÚ !!!

HANN Á AFMÆLI Í DAG

HANN Á AFMÆLI Í DAG

HANN Á AFMÆLI HANN ANDRI PÁLL

HANN Á AFMÆLI Í DAAAAAG....


HANN ER 30 ÁRA Í DAG

HANN ER 30 ÁRA Í DAG

HANN ER 30 ÁRA HANN ANDRI PÁLL

HANN ER 30 ÁRA Í DAAAAGA :D




ELSKU HJARTANS ANDRI PÁLL INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ !!!


Bráðum kemur blogg...lofa...


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 15:43:00 / Ragga

Kalt hrossabjúga með kartöflu / brauðstangir og sósa...

Jújú það sem þið lásuð hér á titlinum var kvöldsnarl okkar Binna eitt gott kvöldið:) Ég var með það fyrr nefnda og Binni það síðar nefnda...veltum því fyrir okkur á meðan við snæddum hvort einhver annar væri með það sama á boðstólnum...

Einhvernvegin efast ég um það:$

Það er alveg eitthvað búið að vera um að vera hjá okkur en samt veit ég sosem ekkert um hvað ég á skrifa...ég er heima í dag með dömuna þar sem hún rauk upp í 40,5 í gær þrátt fyrir að vera búin að fá stíl og allan pakkan, fengum læknir heim en fórum samt seinna um kvöldið upp í kópavog til læknis í streptukokka...(veit ekkert hvernig þetta er skrifað) stroku,  en það kom neikvætt og hún vaknaði hitalaus eftir erfiða nótt...

Hún er búin að vera þó nokkuð oft veik þennan mánuðinn og ætti (síðast þegar ég vissi) að byrja á leikskóla í næstu viku...hef bara ekkert heyrt um hvenær aðlögunin byrjar !

Æ vona að henni bara batni og geti farið að leika sér úti:)

Ég verð ein með hana um helgina og ætlaði aldeilis að gera eitthvað ofur gaman en það verður þá bara inni:)

Binni er að fara í félaga hitting norður og mamma og pabbi farin til Kanada...

Berglind Pálma var að útskrifast síðustu helgi...sá dagur fékk mig bara til að sjá hversu ótrúlega hratt tíminn líður sem hefur sína kosti og galla...vildi alveg stundum að tíminn myndi stoppa smá...fá að njóta augnabliksins lengur ;)

En innilega til hamingju með frábæran árángur Berglind (hún fékk líka tvenn verðlaun daman )

Hellingur búið að vera af afmælum þennan mánðuinn og óska ég þeim sem áttu slíkan dag í Maí til hamingju:)

Einar bróðir bætti svo við einu barnabarninu í hópinn honum Hilmar Einarssyni, sem á heldur betur stoltan afa í sveitinni:) afinn kominn með 2 Hilmara og amman eina Berglind, Lindu og Lind :) gaman fyrir þau :D

En hann Hilmar Litli er að sjálfsögðu algjörlega fullkomin prins:)

Mun skella inn link á hans heimasíðu á Henný Lindar síðu:)

En nú ætla ég að sinna sjúklingum sem kallar á mömmu sína:)

Veriði sæl.

» 9 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 11:27:58 / Ragga

Komin heim af danska tannlæknaþinginu:)

Jæja þá er maður búin að fara á danskt tannlæknaþing...finnst það ósköp "grown up" að segja en það var það sosem ekki í raun:)

ég gekk um og skoðaði tæki og tól og fékk allskonar gefins tannlæknadót og tannbursta og tannkrem og vatn og bjór á þessu þingi (vorum á því frá 10-12 einn daginn) :)

Þessi ferð var bara skemmtileg, mikið drukkið, mikið eða aðeins verslað og félagsskapurinn var hreint út sagt frábær:)

staffið fannst ég frekar heimakær í þessu landi en ég hitti nokkra bara af tilviljun sem var frekar gaman :)

Hitti Völu mína fyrst á vellinum þar sem hún var að taka á móti vinkonu sinni....svo hittumst við aftur á þinginu :)

Svo var ég í 7/11 að versla þegar Brynja systir Elfu vinkonu mætir inn, bara af tilviljun, býr ekki einu sinni í nágrenninu :)

síðan fer ég í h&m og hitti þar Önnu Björg mágkonu Eyþórs og hún tilkynnir mér að þau séu þarna öll svo ég náði að knúsa Eyþór aðeins þá !!

Nönnu var ég þó búin að hitta skipulagslega séð og tókst á meðan að versla mér tösku og setja myndavél, síma og vatnsbrúsa ofaní hana...flaskan sprakk og síminn og vélin dóu :( týbísk Ragga eða???

En það er í góðu með allt núna...var bara bilað yfir nóttina....

Svo á sunnudeginum fórum við á túristarúnt með rútu og gangandi....hafmeyjan, nýhöfn og cristanía skoðað rosa gaman nema að ég fann aldrei skó svo ég var í sömu skónum allan tímann og í lokinn fann ég hvernig tálsublaðran sprakk og verð ég að segja að ég bara gafst upp þá og við dömurnar Gerða ég og Kristín tókum bara taxa og fengum okkur bjór:)

en nema hvað sniðugast var þó að þegar við vorum búin að borða á nýhöfn fórum við Gerða inn aðeins og þegar við komum út sá ég Eyþór standa hjá Palla (hélt að ég væri bara orðin létt klikkuð) þá voru þau þarna í biðröð og bara tilviljun að þetta var á sama stað á sama tíma;) svo ég hitti þau aftur :)

frekar fúlt að hitta samt ekki Ragnheiði Helgu og co. og Önnu og co en það er næst og þá ætla ég nú líka í heimsókn til Eyþórs og Nönnu....:)

En mikið var nú líka ljúft að koma heim...og hitta Henný Lind ...og auðvitað Binna minn líka, heima er nottlega alltaf best:)

En svona var DK hjá mér:)

Henný Lind er alltaf að bæta við orðum hjá sér og er nú farin að segja

"voffi, ú ú (sem er gelt voffans), pabbi, mamma, takk, súpa (með c.a 7 p-um), nammi namm, æ æ (sem mér skilst að sé afi) amma (kemur stundum)" en datt og takk virðist hafa gleymst.

Svo er hún labbandi eins og hún hafi varlað gert annað, dettur reglulega og fær stundum kúlu :) prílar uppí rúm, sófa og stóla og er núna að reyna við hilluna...

og í lok Maí byrjun Júní byrjar litla daman á leikskóla 8| finnst hún rétt ný fædd ! En það er frábært, hún fer á Múlaborg og vonandi mun hún lenda hjá Erlu Björk frænku:)

Þó nokkrar giftingar á þessu ári allavega 4...held ég...

Einar bróðir er alveg að verða pabbi...hugsanlega í maí en hún er sett 2 júní.

Æ nenni ekki meir ætla að finna mat handa Henný Lind (við erum semsagt báðar heima veikar) og svæfa hana og mig:D

C U

» 12 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 12:21:52 / Ragga

æ æ ó ó aumingja ég...(og Henný Lind)

Henný Lind er öll að þroskast og læra og uppgvöta...í gær fattaði hún að það væri nú ekkert mál að setja símann minn í þvottavélina....og ég fattaði að það væri nú lítið mál að skella nokkrum tuskum í vélina....

í dag á ég engann GSM:(

Svo rétt áður en ég fór á fund (sem er alltaf frábært) fattaði ég að annar eyrnalokkurinn minn var ónýtur, skrautið farið úr og týnt....ég voða smart með einn og hálfan lokk í Guð veit hve langan tíma!!!

Mætti svo í vinnuna,þá hringdi dagmamman (í vinnusímann því enginn er gemsinn) og tilkynnti mér að dóttir mín hafi bara lagst flöt á gólfið og komin með hita...

og við á leið á ættarhitting ekki á morgun heldur hinn....

og klukkan er bara 12 !!

svo ég segi bara æ æ ó ó aumingja ég....í dag...

» 12 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 22:24:05 / Ragga

Bara tvö blogg !!!

Jæja það streyma inn meilin til mín, þessi vinakönnun greinilega það heitasta heita í dag:) en þar sem mailið mitt vildi ekki senda nema bara hinum og þessum svara ég hér og þú mátt alveg svara á móti með kommenti nú eða bara emaila á mig !!

ENJOY !

Vina könnun

Ég vona að ég fái þetta aftur frá þér.

Lestu í gegnum svörin hjá vinum þínum og vertu viss um að lesa í gegnum
leiðbeiningarnar neðst á síðunni.
Skemmtu þér vel.

1. Hvað er klukkan? 
  21:38 
 Hvað er fullt nafn þitt?    Ragnheiður Hilmarsdóttir

3. Við hvað ertu hræddust/hræddastur? Dauðann !

4. Fæðingarstaður?  Reykjavík
5. Uppáhalds matur? 
  Kjúklingur og humar

6. Hver er þinn náttúrlegi hárlitur?   Svona brúnn...músbrúnn...

7. Hefurðu einhvern tíman verið með tiltektaræði?  Hmm, allavega ekki oft, en já hef samt fengið slíkt kast !

8. Einhvern tíman farið nakin að synda?   Nei..eða held ekki.. 
9. Hefurðu elskað einhvern svo mikið að þú hefur grátið?  
 Já það hef ég
10. Lent í bílsly
si?  Árekstri já, en ekki slysi

11. Croutons (Brauðmolar) eða beikon bitar?  Croutons á salat...kjúklingasalat nammi namm:D
12. Uppáhalds dagur vikunnar? 
  Laugardagur
13. Uppáhalds veitingarhús?
Púff...veit ekki...
14. Uppáhalds blóm?
Rósir eru alltaf fallegar...en er nú annars ósköp mikil blómakjélling og fell fyrir öllum blómum;)
15. Uppálhalds íþrótt að horfa á
?  Tja...allavega ekki fótbolti...komin með nóg af honumJ

16. Uppáhalds drykkur?  Vatn og carlsberg og malibu hristan með ananassafa og klaka:D

17. Uppáhslds ís?    Bara eitthvað með einhverju súkkulaði
18. Warner Brothers/Disney
   bæði betra
19. Einhvern tíman farið í skip? 
Já...en ekki á siglingu...en hef farið á báta og einhverjar ferjur..en ekki svona risa alvöru skip !!
20. Hvernig er baðmottan þín á litin?
Hvít J 
21. Hversu oft félstu á bílprófinu? 
  Sko....ég féll ekki beint, startaði bílnum og hann hrökk við (steig ekki nógu vel á kúpplinguna) og bílstjórinn neitaði að gefa mér sjéns og rak mig heimL fékk svp prófið 2 dögum síðar... 

 22. Á undan þessu, frá hverjum fékstu e-mail?   Ásdísi og Heiðu Björg
23. Hvað gerirðu þegar þér leiðist? 
  Reyni að finna mér eitthvað að gera eða læt mér leiðast með stút á vör þar til einhver kemur að skemmta mér...
24. Hvenær ferðu í rúmið?
 Á virkum dögum í kringum miðnætti og ósköp misjafnt um helgar og í fríium !
25. Hver verður fyrstur til að svara þessu e-mail?
 Ekki högmynd !!
 26. Hver er ólíklegastur til að svara þessu? Ásdís og Heiða hugsa ég....
 27. Hvaða personu ertu forvitnust að sjá svar frá?  Bara öllum hugsa ég...er frekar forvitin svona almennt !
28. Uppáhalds sjónvarps þáttur? 
  Desperat, friends og grannar !!!
29. Með hverjum fórstu síðast út að borða?   Binna mínum á hótel Holt J
 30. Almennings garður/Dýragarður?   Hugsa dýragarður...annars bara bæði...
31. Uppáhalds litur? 
  fjólublár
 32. Hvað ertu með mörg tattú? 
  Ekkert              
33. Hvað áttu mörg gæludýr?  Ekki neitt....á fullt í fangi með grislingana mína tvo Binna og Henný;)

 34. Hvor kom á undan eggið eða hænan?  Eggið...þarf ekki einu sinni að deila um það
 35. Hvað langar þig að gera áður en þú deyrð?    Leyndó

 36. Hefrurðu komið til Hawaii?  Neibb ekki enn...enn er alltaf á leiðinni samt..
 37. Hefurðu komið til annara landa en Bandaríkjanna?  Já...en aldrei þangað !

  38. Til hve margra ertu að senda þetta e-mail?   Veit ekki
39. Klukkan þegar könnun líkur?
   22:03

ja, hér er það sem þú átt að gera...
Gerðu það ekki skemma skemtunina.
Ýttu á forward, eyddu svörunum mínum og settu þín í staðin.
Sendu þetta svo til fullt af fólki sem þú þekkir LÍKA þess sem sendi þér
þetta. Þú munt læra margar staðreindir um vini þína . Mundu að senda þetta
til þess sem sendi þér þetta.

DESPO ER AÐ BYRJA VERÐ AÐ FARA Í NÁTTFÖT SÁ MÉR KÓK OG HUGSANLEGANAMMI...SPENNAN ER BARA EINFALDLEGA OF MIKIL !!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 20:48:33 / Ragga

Tyrkneskt bað, nudd, litur og plokkun, dinner á Holtinu...

Jújú svona var síðasta helgi hjá mér....semsagt algjörlega yndisleg:)

Ég fékk í jólagjöf frá vinnunni tyrkneskabaðið, nudd, gufa og máltíð ásamt einu vínglasi og skellti mér eftir vinnu s.l föstudag og þetta var bara snilld:)

Nema kannski einnota g-strengurinn sem við fengum að vera í á meðan á baðinu og nuddinu stóð...en það er nú allt gleymt og grafið;)

fór með Binnu og þakka ég henni fyrir góða stund í Laugumspa:)

Svo svaf ég út og fór svo í lit og plokk og svo á búðaráp !!

Svo notuðum við jólgjöfina hans Binna frá hans vinnu sem var máltíð á hótel holt !! 7 rétta máltíð með kapavíni í fordrykk, þvílíki draumurinn...maturinn var æði og stemningin í takt við það, huggulegt kósý og gaman:)

Svo var bara sunnudagur með Henný Lind sem var punkturinn yfir i-ið :D

Svo var vinnufundur á þriðjudaginn og þá var ákveðið að skella sér til DANMERKUR (köben) á tannlæknaþing, bara geggjað !!! nema að það er makalaust...og ég hefði svo viljað að hafa Binna minn með mér:( en það kemur síðar !! Kaupi bara eitthvað flott handa honum:)

Förum á fimmtudagsmorgni og komum á sunnudegi heim !!

Er að fara á Laddi sextugur á morgun, Andri og Ásdís fengu boðsmiða og bjóða okkur skötuhjúum með...

semsagt á einum mánuði mun ég fara í tyrknesktbað, nudd, á hótel holt, Laddi sextugur og til danmerkur algjörlega frítt ;)

LOVLÍ !!!

Ég var nú með einhverjar djúpar pælingar um daginn sem ég ætlaði nú aldeilis að blogga um en þær fóru svo djúpt þessar pælingar að ég er búin að týna þeim...

Henný Lind stækkar og þroskast óköp eðlilega bara og er gullfalleg og alveg yndislega skemmtileg karakter og þrjóskari og frekari en foreldrarnir saman :) sem samgt algjört gull;)

Pabbi kallinn er ekki lengur byggingafulltrúi....frekar skrítið að hugsa til þess !! Enda búinn að vera það í 31 ár !! Flott afrek hjá honum, er voðalega stolt af kallinum, enda flottur kall hann pabbi:)

Jæja Eybí mín....fréttiru eitthvað nýtt;)

En gaman að sjá já líka að einhverjir séu nú enn að lesa bloggið mitt, líst vel á ykkur:)

Fæ vonandi einhverja voða djúpa hugsun bráðum til að deila með ykkur:)

Bless mens

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 21:08:15 / Ragga

Er stundum að velta því fyrir mér...

Hvort einhver sé enn að skoða þessa síðu mína...sínist nú myspace vera búið að taka völdin og ef maður er ekki þar þá bara gerist ekkert í kommentum:s

» 22 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 18:30:19 / Ragga

Jæja þá er árið bara að verða búið....

Ég ætlaði mér að setjast niður og skrifa einhverja punkta frá árinu eins og í fyrra en það gerðist bara ekki alveg jafn mikið nú í ár eins og í fyrra....en þó eitthvað og þá líka mest tengt henni Henný Lind minni:)

Við skýrðum dömuna í maí, fórum í ferðalag í sumar bæði norður og vestur, fórum á 2 ættarmót í minni móðurætt, brúðkaup hjá vinafólki Binna þar sem ég fékk knús ársins frá bláókunnugum eldri manni sem fór á mannavilt...alveg dásamlegt, fórum nokkrar ferðir norður á Akureyri (en þó því miður ekki alveg nógu margar) ,

blái druslu kagginn dó og við keyptum bíl í stað hans af Ómari Binnar bróðir, fínan ford focus sem er að standast allar væntingar, keyptum okkur einnig hornsófa og söfnuðum að okkur allskyns fríu dóti af barnalandi og erum búin að koma okkur bara vel fyrir í álftó !!

Eldri borgararnir eru í skýjunum með nýja gangarmeðlimin hana Henný Lind, ef hún grætur þá brosa þeir því þá er svo mikið líf í ganginum:) Ég sé um sameignina og fæ smá auka laun í því !!

Svo byrjaði ég í nýrri vinnu, hjá Palla tannsa í hamraborginni og ég fíla þá vinnu útí eitt !! Búin að kynnast fullt af nýju og alveg frábæru fólki:)

Þannig að það er eitthvað búið að vera að gerast á árinu, en þó er ekkert sem toppar það að fylgjast með henni Henný minni Lind vaxa og dafna :)

Áramótaheitið mitt í ár er að læra að prjóna....ég skal ætla og vil !! langar að geta gert eitthvað flott á skvísuna og kannski bara okkur Binna líka:) hver veit:)

Hjá Binna er líka allt gott að frétta, held að Liverpool hafi staðið sig ágætlega á þessu ári sem er að sjálfsögðu nr.1 3 og 4 hjá honum (við Henný Lind erum þarna númer 2 hehe) ;) Hann hætti hjá SS og fór að vinna í garðabænum hjá heildverslun og líkar vel bara !!

Núna er hann fyrir norðan að taka loka djömmin á þessu ári með félögunum og fjölskyldu og ætlar að eyða með þeim áramótunum:( en það er okkar sameigileg ákvörðun og í henni fylgja bílaviðgerðir og afmæli svo við erum sátt, getum bara kyssts á nýársdag!!

En ég er að hugsa um að gefa beibíinu eitthvað að snæða....

Bið að heilsa ykkur öllum og hafið það gott á nýja árinu

            GLEÐILEGT ÁR

                        


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 11:49:50 / Ragga

Vildi bara,,,,

óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári :D

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22
Heimsóknir
Í dag:  17  Alls: 235008
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan
Fréttir o.fl.
Bara fyrir Beggu frænku:)